Sony Xperia T3 - Heimavalmynd albúms

background image

Heimavalmynd albúms

Í valmyndinni á albúmsheimaskjánum getur þú flett í gegnum öll myndaalbúmin þín, m.a.

albúm með ljós- og hreyfimyndum úr myndavélinni, auk efnis sem þú deilir á netinu um

þjónustuveitur á borð við PlayMemories, Picasa™ og Facebook. Þegar þú hefur skráð

þig inn í slíka þjónustu getur þú unnið með efnið, skrifað athugasemdir við myndir og

myndskeið og séð athugasemdir frá vinum. Í forritinu Albúm getur þú líka bætt

landmerkjum við myndir, gert einfaldar breytingar og notað þráðlausa Bluetooth® tækni

og tölvupóst til að deila efni.

1

Skoða myndir og myndskeið með vefþjónustunni PlayMemories Online

2

Aftur á heimaskjá albúmforritsins

3

Skoða allar myndir og myndskeið úr myndavélinni í tækinu

4

Skoða allar myndir og myndskeið sem eru vistuð í ólíkum möppum

5

Skoðaðu uppáhaldsljósmyndirnar og myndskeiðin

6

Skoða allar myndir með andlitum

7

Skoðaðu myndirnar þínar á korti í hnattstillingu

8

Skoða myndir og myndskeið á Facebook™

9

Skoða myndir og myndskeið í Picasa™

88

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

10 Skoða myndir með vefþjónustunni Flickr™

PlayMemories Online vefþjónustan er ekki í boði í öllum löndum eða svæðum.

Myndir skoðaðar á netinu í Albúmi

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Albúm og dragðu svo vinstri brún heimavalmyndar Albúms til

hægri.

3

Pikkaðu á viðeigandi netþjónustu og fylgdu síðan leiðbeiningum á skjánum um að

hefjast handa. Öll tiltæk netalbúm sem þú sendir á þjónustuna koma upp.

4

Pikkaðu á eitthvert albúm til að skoða innihaldið, pikkaðu síðan á mynd í albúminu.

5

Flettu til vinstri til að skoða næstu mynd eða myndskeið. Flettu til hægri til að

skoða myndina eða myndskeiðið á undan.

Athugasemdir skoðaðar og bætt við á albúmsefni á netinu

1

Þegar mynd er skoðuð úr albúmi á netinu skaltu pikka á skjáinn til að birta

tækjastikurnar, pikkaðu síðan á til að skoða athugasemdir.

2

Færðu þínar athugasemdir inn í innsláttarreitinn og pikkaðu síðan á

Birta.

Til að „Líka við“ mynd eða myndskeið á Facebook™

Á meðan mynd eða myndskeið er skoðað úr einu af albúmunum þínum á

Facebook™, pikkaðu á skjáinn til að sýna tækjastikurnar og pikkaðu svo á til að

sýna að þér „Líki við" hlutinn á

Facebook™.