Samsetning
Á skjánum er plastfilma til varnar. Þú ættir að fletta þessari filmu af áður en snertiskjárinn
er notaður. Annars virkar snertiskjárinn hugsanlega ekki rétt.
Micro SIM-kortið sett í símann
Settu micro-SIM-kortið í með penna með mjóum oddi eða álíka tóli.
7
Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.
1
Láttu bakhlið tækisins snúa að þér og settu fingurnöglina í bilið milli micro SIM-
kortaraufarinnar og neðri hlið tækisins og taktu síðan hlífina af.
2
Láttu gylltu snerturnar snúa að þér og þrýstu micro SIM kortinu inn í raufina þar til
þú heyrir smell.
3
Settu hlífina á micro SIM-kortaraufinni aftur á.
Ef þú setur micro SIM-kort í á meðan kveikt er á tækinu endurræsist það sjálfkrafa.
Minniskort sett í
Settu minniskortið í með penna með mjóum oddi eða álíka tóli.
1
Settu fingurnögl í bilið milli minniskortahlífarinnar og tækisins og taktu síðan
minniskortahlífina af.
2
Settu minniskortið í minniskortaraufina þannig að gylltu snerturnar snúi að þér og
ýttu svo minniskortinu alla leið inn í raufina þar til þú heyrir smell.
3
Settu hlífina aftur á kortaraufina.
Micro SIM-kortið tekið úr símanum
1
Fjarlægðu lokið af micro SIM-kortsraufinni.
2
Ýttu micro SIM-kortinu inn með penna með mjóum oddi eða álíka tóli og slepptu
því svo snöggt.
3
Dragðu kortið alveg út og fjarlægðu það.
4
Settu hlífina á micro SIM-kortaraufinni aftur á.
8
Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.
Minniskort fjarlægt
1
Slökktu á tækinu og fjarlægðu lokið á minniskortsraufinni.
2
Ýttu micro minniskortinu inn með penna með mjóum oddi eða álíka tóli og slepptu
því svo snöggt.
3
Dragðu kortið alveg út og fjarlægðu það.