Samstilling við netreikninga
Samstilltu tækið við tengiliði, tölvupóst, dagbókarviðburði og aðrar upplýsingar af
netreikningum, t.d. tölvupóstreikningum á borð við Gmail™ og Exchange ActiveSync,
Facebook™, Flickr™ og Twitter™. Þú getur samstillt gögn allra reikninga sjálfkrafa með
því að virkja sjálfvirka samstillingu. Eða þú getur samstillt hvern reikning handvirkt.
Netreikningur til samstillingar settur upp
1
Á Heimaskjár pikkarðu á .
2
Pikkaðu á
Stillingar > Bæta við reikningi og veldu svo reikninginn sem þú vilt
bæta við.
3
Fylgdu leiðbeiningunum til að búa til reikning eða skrá þig inn ef þú ert þegar með
reikning.
Samstillt handvirkt við netreikning
1
Á Heimaskjár pikkarðu á >
Stillingar.
2
Undir
Reikningar velurðu tegund reikningsins og pikkar svo á heiti reikningsins
sem þú vilt samstilla við. Listi yfir atriði sem hægt er að samstilla við reikninginn
birtist.
3
Merktu við þau atriði sem þú vilt samstilla.
4
Pikkaðu á og svo á
Samstilla núna.
Netreikningur fjarlægður
1
Á Heimaskjár, pikkarðu á >
Stillingar.
2
Veldu tegund reiknings undir
Reikningar og pikkaðu svo á heiti reikningsins sem
þú vilt fjarlægja.
3
Pikkaðu á og svo á
Fjarlægja reikning.
4
Pikkaðu aftur á
Fjarlægja reikning til að staðfesta.